Árið 2012 verður ár retro-hársins.
Nú er það retro. Við erum farin að sjá greinilegt trend núna, endurkoma hárs sem konur skörtuðu gjarnan á fimmta, sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Áhrifin eru til dæmis frá Pin-Up stelpunum og Old Hollywood glamúrnum sem alltaf var svo fallegur.
Þetta segir okkur einungis eitt. Við verðum núna að taka okkur smá tíma í að fínpússa hárið, því nú þarf það að líta út fyrir að vera vel hirt og fullkomið (bæbæ úfni lubbi). Það er því kominn tími á að splæsa í hárþurrku, krullujárn og hársprey. Einnig getur verið gott að kaupa sér rúllubursta til að ná fram liðum í hárið og jafnvel nokkrar rúllur eins og amma. Versace og D&G sýndu til dæmis retro-liði á tískusýningum sínum fyrir vorið og sumarið 2012.
Nýjasti trendsetterinn þegar kemur að þessu trendi eru augljóslega söngkonan Lana Del Rey, en margar þær stelpur sem farnar eru að greiða sér á þennan máta hafa sótt innblástur sinn til hennar.
Þetta trend helst svo í hendur við rauða varalitinn og svarta eyelinerinn sem við elskum svo heitt.



vá er svo mikið búin að hafa innblástur frá lana del rey, sérstaklega hárið og er byrjuð að gera hárið mitt oft mjög svipað og fatastíllinn hennar er æði.