Forsíðuna prýðir Ísabella frá Elite Models, ljósmyndari Tomasz Veruson
Áramóta- og janúarblað NUDE magazine The Party Issue er fullt af glansi og glimmeri. Okkur finnst það viðeigandi núna þegar nýtt ár er að bresta á með öllum sínum vonum og væntingum. Við lítum yfir árið sem er að líða í skemmtilegum tískuannál þar sem farið er yfir það helsta úr tískuheiminum.
Tískuvikan í Kaupmannahöfn er í miklu uppáhaldi hjá okkur og segjum við frá þeirri síðustu í máli og myndum.
Við sýnum fallega fylgihluti sem gætu vakið athygli í áramótapartýinu. Áherslan í áramótaförðuninni er á varir og augu. Við gefum hugmyndir að öðruvísi hárgreiðslum um áramótin enda enginn tími betri fyrir smá tilbreytingu.
Við gefum góð ráð hvernig best er að haga innkaupum á útsölunum sem eru að hefjast út um alla borg.
Í pistli Heru Guðmundsdóttur frá París er farið yfir það sem Parísardömum finnst ómissandi í kvöld- og hátíðarklæðnaði.
Smelltu hér til þess að lesa tímaritið og fá innblástur fyrir áramótaútlitið.
Gleðilegt nýtt ár og farið varlega með flugeldana!


