Hvar værum við án klassíka litla svarta jakkans sem passar við allt? Árið 1926 var mikið „hæp“ í kringum The Little Black Dress frá CHANEL, kjóll sem er einnig ómissandi í fataskáp hverrar konu. Núna 86 árum síðar er klassíki svarti jakkinn frá CHANEL tekinn fyrir. Í tilefni þess er Lagerfeld að gefa út bók ásamt Carine Roitfeld. Bókin heitir The Little Black Jacket: CHANEL’s Classic Revisited og verður gefin út í lok sumars.
Þau fengu í lið með sér fræga leikara, hönnuði og söngvara á borð við Yoko Ono, Alexander Wang og Söruh Jessicu Parker. Ásamt þeim er að finna fullt af öðrum fögrum svarthvítum ljósmyndum af svarta jakkanum í mismunandi útgáfum. Ljósmyndasýning var haldin bæði í Tokoyo og New York þar sem bókin var kynnt og myndir úr bókinni prýddu veggina. Hérna eru nokkrar skemmtilegar myndir úr bókinni og frá sýningunni.






Hérna má sjá behind the scences myndband við gerð bókarinnar







