Eitt af trendum haustsins er klassíska taglið og var fjöldi hönnuða sem notaði taglið í sýningum sínum fyrir haustið – enda dregur það athyglina að fötunum. Nú er taglið í allskonar útfærslum, getur verið messy, krullað eða alveg rennislétt. Að vera með tagl getur framkallað mjög flott og fágað lúkk – og það er alveg fáránlega auðvelt að ná því lúkki. Allir ættu að geta gert tagl (ef þeir eru með sítt hár á annað borð). Svo ekki sé minnst á að það að setja í sig tagl tekur enga stund og maður þarf varla neitt nema eina teygju.

Taglið í mismunandi útfærslum.
Það sem er mjög heitt núna, er að taka hárlokk og snúa honum utan um teygjuna, þannig að hárið feli hana. Ég mæli algjörlega með því! Dries Van Noten setti líka gullhringi í hár sinna fyrirsæta til að fela teygjuna og það kom mjög vel út. Marc Jacobs, Gucci, Valentino og Alexander Wang notuðu allir tagl á tískupöllunum fyrir haustlínur sínar.
Dries Van Noten sett gullhring utan um tagl fyrirsætanna.
Að setja í sig tagl getur einnig bara bjargað hinum verstu hárdögum og þeir sem eru alltaf með „bad hairday“ ættu því að fagna þessu trendi. Til að fullkomna taglið má svo spreyja örlítið af ilmvatninu sínu í lubbann – hár tekur vel við ilmvatni og það er yndislegt að vera með vel lyktandi hár. Passið bara magnið, þið viljið ekki vera liðið sem er óþolandi að sitja við hliðina á í bíó.


