Pixie cut hár Chalize Theron vakti mikla athygli á Óskarshátíðinni um síðustu helgi enda fer stutta hárið henni einstaklega vel. Á Óskarnum sjáum við fleiri með mjög stutt hár, til dæmis Halle Berry og Michelle William sem reyndar hafa verið með þennan stíl nokkuð lengi. Anne Hathaway er einnig glæsileg með stutt hár, en hún lét hárið fjúka fyrir hlutverk sitt í Vesalingunum og sagði það hafa verið henni mjög þungbært.
Við sjáum reyndar Pixie cut stíllinn alltaf öðru hvoru og það fyrsta sem mörgum dettur í hug er Twiggy, en þessi hárgreiðsla var einmitt eitt af hennar einkennum. Við erum kannski ekki allar gerðar til að bera pixie cut hár, en hér koma myndir af nokkrum glæsilegum konum sem hafa látið hárið fjúka og púlla það algjörlega.
Kannski að þetta sé bara spurning um að þora?

















