Það er alltaf gaman að sjá hvað Balmain hefur fram að færa og er haust og vetrarlínan nútímaleg með miklar áherslur á mitti og axlir. Litavalið kom heldur betur á óvart, þar sem kóngablár, skærbleikur, fjólublár ásamt metallic tónum réðu ríkjum. Einnig var mikið um gljáa og glampa, skínandi satín, gullbelti og oversized jakka. Yfirhönnuður Balmain, Olivier Rousteing kallar línuna ‘‘Joyful Collection‘‘.
Haust og vetrarlína Balmain











