Ókeypis skemmtun!

Ekki missa af skemmtilegum sumartónleikum!

Of Monsters and Men ætla að bjóða upp á fría tónleika í Hljómskálagarðinum Laugardaginn 7 júlí klukkan 18-22.

Hljómsveitin hefur verið að gera það virkilega gott upp á síðkastið og fengið ótrúlega góðar viðtökur bæði hérlendis sem og erlendis. Seinustu mánuðina hefur hljómsveitin verið að túra í Bandaríkjunum og víða í Evrópu. Það virðist ekki vera neitt lát á tónleikaferðalaginu allavegana fram á haust og svo hefur hljómsveitin staðfest framkomu sína á Airwaves.

Fyrsta plata þeirra heitir My head is an animal og fór beint í 6. sæti bandaríska Billboard listans! Nú þegar hafa selst um 192 þúsund eintök af plötunni í Bandaríkjunum.

Fögnum þessum frábæra árangri með þeim og mætum öll í hljómskólagarðinn næsta laugardag.

 

 

 

Tags: , , , , ,

Fáðu fría áskrift af NUDE magazine

Skráðu þig hér og fáðu NUDE magazine frítt mánaðarlega.

No comments yet.

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.