NUDE home

Veftímarit um heimili, hönnun, mat, vín og allt það sem gerir lífið aðeins betra!

Vefurinn nudehome.is er í vinnslu en mun fara í loftið á allra næstu dögum, þangað til hvetjum við ykkur til þess að fylgjast með á Facebook síðunni okkar fyrir NUDE home.

Smelltu hér til þess að skoða fyrsta tölublaðið.

 

Þetta fyrsta tölublað af NUDE home er 154 síður að stærð. Ritstjóri blaðsins er Þórunn Högnadóttir stíllisti og blaðamaður sem er fyrrverandi ritstjóri sjónvarpsþáttarins Innlit/Útlit.

Í þessu fyrsta blaði er fjölbreytt efni þar sem áhersla er á danska hönnun. Lesendur fá yfirlit yfir helstu hönnunarverslanir sem gaman er að heimsækja í Kaupmannahöfn og íslenskir arkitektar segja frá danskri hönnun sem er í uppáhaldi hjá þeim.

Farið er í heimsóknir til Oliver Gustav í 18. aldar bruggverksmiðju við Kongens Nytorv og á veitingastaðinn Noma í Kaupmannahöfn sem er þekktur fyrir framúrstefnulega matargerð. Birt er grein um danska húsgagnahönnuðinn Poul Kjærholm.

Fjallað er um heimili finnska stíllistans Katri Tauriainen og birt viðtal við Gullu arkitekt í Los Angeles. Sumarhús fimm manna íslenskrar fjölskyldu er skoðað og heimsókn á vinnustofu ELLU í Ingólfsstræti.

Birtar eru myndir af 15 frægustu stólunum. Þá fá lesendur tækifæri til að senda spurningar til ráðgjafa og leiðbeiningar um hvernig þeir geta sjálfir frískað upp á hluti heima hjá sér eða búið þá til.

Fyrir sælkera eru að finna uppskriftir að hamborgurum, sósum, kartöflum, avocado samloku og sítrónuköku.

Njótið!