Á morgun fimmtudag, frumsýnir GK Reykjavík vetrarlínu McQ by Alexander McQueen sem er eitt af mörgum spennandi merkjum sem byrja hjá GK Reykjavík á þessu ári en verslunin hefur aldrei áður boðið upp á jafn breitt úrval af flottum merkjum.
GK Reykjavík opnar klukkan 10 og í boði verða dásamlegir kjólar, yfirhafnir, klútar og fleira. Við hvetjum alla til þess að kíkja við og líta dýrðina augum. Sumir kjólanna hafa verið teknir frá og eru því að seljast upp ásamt því að vera nú þegar uppseldir á Net-a-Porter, það er því um að gera að vera tímanlega!



