Kate Moss í George Michael myndbandi…

Það hefur lengi verið hefð að módel komi fram í tónlistarmyndböndum. Að þessu sinni er það Kate Moss sem mun leika á móti George Michael í nýjasta myndabandi hans við lagið, „White Light“ .

Þetta hefur heppnast misvel í gegnum tíðina en svo virðist sem Kate verði bjargvættur George Michael að þessu sinni þar sem hún virðist að okkar mati vera það áhugaverðasta við myndbandið.

George Michael gerði „trailer“ fyrir tónlistarmyndbandið sem er vægast sagð óvenjulegt, sérstaklega þar sem lagið í heild sinni er aðeins 2 mínútur!

Hér fyrir neðan er hægt að sjá „trailer-inn“ en myndbandið í heild sinni verður frumsýnt á morgun þann 17 júlí.

 

George Michael hefur áður verið með fyrirsætur í myndböndunum sínum og eitt það eftirminnilegasta er „Freedom“ sem kom út árið 1990. Öll heitustu módelin á þeim tíma tóku þátt í því en það voru fyrirsætur á borð við Naomi Campbell, Lindu Evangelista, Christy Turlington, Tatjönu Patitz og Cindy Crawford.

Kate Moss sem hefur alltaf haldið mikið uppá George Michael var víst alveg eyðilögð yfir því að hafa ekki verið beðin um að taka þátt í myndbandinu og því ætti nýja myndbandið að vera plástur á sárið.

 

Tags: , , ,

Fáðu fría áskrift af NUDE magazine

Skráðu þig hér og fáðu NUDE magazine frítt mánaðarlega.

No comments yet.

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.