Versace
Mjög líkamsmeðvituð lína eins og Versace tískuhúsinu einu er lagið. Donatella Versace blandar saman sterkum formum, ferköntuðum öxlum og stíf efni í bland við mjög „flowie“ gegnsæ efni sem henta merkinu ákaflega vel. Línan einkenndist af ljósum og skærum litum og stórum munstrum í bland við bróderingu. Ákaflega sterk og sexy Couture lína að venju frá Versace. Einnig voru fylgihlutir áberandi, stór belti með miklum silgjum og gríðarlega stórir kokteil-hringar með áberadi lituðum steinum.
Christian Dior
Fyrsta lína Raf Simons fyrir Dior og lína sem margir biðu spenntir eftir. Houte Couture línur eru yfirleitt íburðarmeiri en aðrar línur tískuhúsanna, margir leggja upp úr því að það sé mikið handsaumað og tölvuverð vinna er lögð í hverja flík fyrir sig.
Dior couture línan kom mikið á óvart. Hún var mjög stílhrein og svört til að byrja með en svo bættust inn flíkur í fleiri litum og víðari „silúettur“ sem minntu óneitanlega á Jil Sander. Línan er augljóslega mjög vönduð með áhugaverðum smáatriðum og sniðum sem minna á upphaf tískuhússins þegar sjálfur Christian Dior réði ríkjum.




