Enn meira Resort 2013

Alexander Wang

Æðisleg resort lína frá Alexander Wang. í þessari línu blandar hann saman áhugaverðum efnum og áferðum. Innblástur Wangs fyrir línu var að „klippa og líma“ og sáust þau áhrif stekt í línunni. Vel gert herra Wang!

Christian Dior

Síðasta lína Bill Gaytten fyrir Dior. Línan er fersk og skemmtileg. Óumflýjanlegt er að sjá áhrifin frá Christian Dior sjálfum þar sem jakkarnir eru nánast eins sniðnir og gríðarleg áhrif frá ‘New Look’ sem Christian Dior sjálfur fann uppá. Vel gerð og falleg lokalína sem Gaytten getur verið stoltur af.

Diane von Fustenberg

Skemmtileg lína Frá Diane von Fustenberg. Stór print og gróf munstur einkenndu línuna enda er Diane snillingur þegar kemur að munstri. Einföld form leifðu munstrum að njóta sín.

Fendi

Lego, Leonard Stolpa, og hann sjálfur 1970 var innblástur Karls Lagerfelds fyrir línuna. Resort línan einkenndist af fallegum litum og er einstaklega sumarleg. Við elskum þessa línu.

Helmut Lang

Töffaraleg og svöl resort lína frá Helmut Lang.

Missoni

Angela Missoni sótti innblástur í  keramik og kínverskt póstulín. Línan var glæsilegri en fyrri resort línur tískuhússins og auðvitað ekki án fræga Missoni munstursins.

T by Alexander Wang

T línan frá Alexander Wang sem er örlítið ódýrari línan frá hönnuðinum er að verða gríðarlega vinsæl og þessi resort lína á ekki eftir að draga úr því. Sjúklega svöl lína, frekar dark miðað við resort línu en ómótstæðileg engu að síður.

Versace

Litaglöð lína sem einkenndist af rómantískum og rokkarlegum munstrum ‘Rockmantic’. Donatella Versace fann innblástur línunnar í ákveðnum Memphis stíl sem var áberandi í Milano frá 1980. Kolfinna K. sat fyrir á öllum resort myndunum.

 

 

Tags: , , , , , , , , , , , , ,

Fáðu fría áskrift af NUDE magazine

Skráðu þig hér og fáðu NUDE magazine frítt mánaðarlega.

No comments yet.

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.