Eins og bótox í krukku!

Í gærkvöldi fórum við í skemmtilegan fögnuð í Betri stofunni í Hreyfingu þar sem nýji þörungamaskinn frá Bláa Lóninu var kynntur. Þar fengu allir að prufa maskann á handabakið og það sást ótrúlegur munur á húðinni sem var bæði sléttari og fallegri.

Ég var mjög spennt að prufa maskan á andlitið og skellti mér strax í heitt bað þegar ég kom heim og setti á mig maskann (það er enn betra að nota fyrst kornaskrúbb, en ég mátti engan tíma missa!).

Það fyrsta sem ég tók eftir var að maskinn ilmar ekkert sérstaklega vel en ég held að það sé bara kostur. Maskinn er náttúruleg vara og þetta segir mér það að það sé ekki búið að fylla hann af ilmefnum.

Um leið og ég þreif maskann af fann ég hvað húðin var stinn, eins og ég hefði farið í andlitsliftingu! Húðin var líka lífleg, ljómandi og endurnærð.

Þörungamaskinn eða Blue Lagoon algae mask eins og hann heitir réttu nafni hefur að geyma tvær tegundir blágrænna þörunga sem er hvergi að finna annars staðar í heiminum en í Bláa Lóninu. Rannsóknir sýna að þessir þörungar vinna gegn öldrun húðarinnar með því að viðhalda kollagenframleiðslu hennar, kollagen gegnir lykilhlutverki í þéttleika húðarinnar og teygjanleika.
Þörungarnir innihalda einnig áhugaverð lífvirk efni sem hafa andoxunar-, bólguhemjandi-, rakagefandi- og nærandi eiginleika, svo sem phycocyanin, carotenodie, fjölsykrur, olíur og E, A og D vítamin.

Þar fyrir utan er Blue Lagoon algae mask er náttúruleg vara og algjörlega án parabena.

Maskinn kostar 7.900 og fæst meðal annars í Bláa Lóninu, Hagkaup, flestum apótekum og í Hreyfingu.

 

Tags: , ,

Fáðu fría áskrift af NUDE magazine

Skráðu þig hér og fáðu NUDE magazine frítt mánaðarlega.

No comments yet.

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.