Boðskort, hugmyndir, hönnun og prentlausnir!

Mynd eftir Auði Ýr Elísabetardóttur

Í tilefni af trúlofun okkar Lucasar teiknaði Auður mágkona mín mynd af okkur. Myndin var ótrúlega falleg og skemmtileg. Hún teiknaði litla skopmynd af mér og verðandi með karakter okkar sem innblástur. Mágkona mín heitir Auður Ýr Elísabetardóttir og tekur að sér að hanna svona kort fyrir fólk. Kortin eru sniðug bæði sem boðskort sem og gjafakort fyrir veislugestina.

Eftir að ég fékk kortið ákvað ég að halda þessu þema fyrir boðskortin. Lucas er líka listamaður þannig ég fékk hann til að teikna mynd sem ég skannaði inn og full vann í tölvu. Myndin er af okkur og eins og hitt kortið með okkar persónuleika og húmor sem innblástur. Við ákváðum að hafa boðskortin stílhrein og einföld og aðeins með helstu upplýsingum.

Í kortinu biðjum við svo fólk um að staðfesta komu sína með því að senda okkur e-mail og þá munu gestirnir fá frekari upplýsingar sendar til sín. Ég mæli með að búa til nýjan sér e-mail reikning svo að það sé ekki að týnast í ykkar persónulega tölvupósti.

Mynd eftir Lucas Keller

Það er líka vinsælt að fólk geri einfalda heimasíðu sem er opin aðeins fyrir gesti og inniheldur allar helstu upplýsingar fyrir brúðkaupið. Ég hef fengið innblástur og hugmyndir frá síðu sem heitir Theknot.com en þar er hægt að setja upp slíka heimasíðu sem einfalt er að vinna með, líka fyrir þá sem eru ekki eins tölvuvanir.

Ég mæli með að þið setjið gestalistann uppí excel skjal, þá eru þið mitt gott skipulag yfir allt og getið merkt við hverjir hafa staðfest og hverjir ekki.

Þegar ég fór að pæla í hvar ég ætti að láta prenta út boðskortin var mér bent á að kynna mér Reykjavík Letterpress. En það eru þær Hildur Sigurðardóttir og Ólöf Birna Garðarsdóttir sem reka það fyrirtæki en þær eru báðar grafískir hönnuðir. Þær eru með ótrúlega margar fallegar hugmyndir fyrir meðal annars boðskort og prenta það á sérstakan máta(letterpressed) þannig að myndin og eða stafirnir verða upphleyptir. Þær hafa hannað fullt af flottum boðskortum og prenta meðal annars á servíettur og blöðrur.

Hérna eru nokkrar fallegar myndir frá Reykjavík Letterpress

Reykjavík Letterpress

Sniðug minnig fyrir gestina, Reykjavík Letterpress

Servíetta, Reykjavík Letterpress

Það er líka gaman að láta útbúa fyrir sig sérönnuð frímerki með mynd af parinu eða einhverri annarri mynd fyrir boðskortin. Þetta gerir boðskortin persónulegri. Það er hægt að panta slík frímerki á netinu á einfaldan máta, þið getið skoðað þetta nánar inni á Póstur.is undir „frímerkin mín“.

Þetta eru fínu frímerkin sem við fengum.

Ég fékk strax mjög góð viðbrögð við frímerkjunum og margir pössuðu sérstaklega upp á umslögin vegna þeirra.

Það eru til endalausar lausnir fyrir boðskort. Það um að gera að nota hugmyndaraflið, föndra eða fá einhvern listamann eða grafískan hönnuð sér til aðstoðar.

 Hér eru nokkrar flottar hugmyndir af boðskortum sem ég fann á netinu

Jóhanna ritstjóri NUDE magazine föndraði svona kort fyrir sitt brúðkaup

Ég mæli með að þið fáið verðtilboð frá mismunandi prent aðilum, t.d hjá OddaPrentlausnum, Samskiptum, Pixlum og jafnvel hjá Hans Petersen ef þið viljið láta prenta ljósmynd.

 

Í næsta brúðarbloggi mun ég fjalla um Berglindi fatahönnuð sem hannar undir nafninu Begga Design. En næstkomandi fimmtudag,  7. Júní, mun hún kynna brúðarlínu sína í versluninni 20BÉ á horni Laugavegs og Klapparstígs frá klukkan 17:00 til 20:00. Hérna má sjá viðburðinn.

Þið sem eruð ný að detta inná brúðarbloggið getið kíkt á eldri færslur á vefsíðunni okkar undir „Brúðarbloggið“


Tags: , , , , , ,

Fáðu fría áskrift af NUDE magazine

Skráðu þig hér og fáðu NUDE magazine frítt mánaðarlega.

No comments yet.

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.