Þessi ævintýralega auglýsingaherferð var gerð fyrir Gucci ilmvatnslínuna sem heitir Flora, The Garden Collection. Abbey Lee Kershaw sat fyrir og minnir helst á Lísu í undralandi í þessari fallegu heferð. Abbey Lee klæðist fögrum flæðandi kjólum hönnuðum af yfirhönnuði Gucci Fridu Giannini. Sølve Sundsbø tók myndirnar.
Flora línan er ný blómailmlína með vísunum til eins frægasta munsturs tískuhússins. Flora by Gucci.
Flora Garden línan er í hærri og íburðarmeiri glösum en hin sígilda Flora by Gucci lína; þetta hærra glas minnir á stöngul blóms, grannt en sterkt.
Glasið er með hinni sígildu sexhyrndu lögun Flora by Gucci ilmvatnanna, með gegnsæjum tappa sem um er bundinn svartur borði með bambusskúfum, en þeir vísa til sögulegs munsturs tískuhússins. Letrið á merkinu vísar til stofnanda tískuhússins, Guccios Gucci.
Hvert ilmvatn er í sínum sérstaka lit – fölbleikum, grænum eða bláum og öskjurnar með samsvarandi blómi úr Flora-munstrinu. Litirnir og blómin eru fulltrúar ólíkra eiginleika Flora Garden konunnar.
Gorgeous Gardenia Íburðarmikill hvítur blómailmur
Gracious Tuberose Frábærlega ferskur blómailmur
Glamorous Magnolia Mildur rósailmur
Hérna segir Abbey Lee aðeins frá ilmnum og myndatökunni









