Í kvöld verða haldnir tónleikar á Faktorý til þess að vekja athygli á málefnum flóttamanna á Íslandi. Fyrsta hljómsveitin mun stíga á svið um kl. 22 en miðasalan hefst kl. 21 og kostar litlar 1000 kr. inn (einnig verður tekið við frjálsum framlögum á staðnum).
Hljómsveitirnar Sudden Weather Change, Ojba Rasta og Retro Stefson munu koma fram.
Gott málefni og flottar hljómsveitir!
Ætlar þú ekki örugglega að láta sjá þig?



