NUDE magazine er tískutímarit sem er gefið út á netinu einu sinni í mánuði. Tímaritið var stofnað í apríl 2010 og hefur komið út í hverjum mánuði síðan. NUDE magazine er frítt tímarit og því getur hver sem er skoðað blaðið. Með því viljum við gera fróðleik um tísku aðgengilegri, án þess að það þurfi að borga fyrir hann.Við höldum einnig úti daglegu bloggi þar sem við birtum allt milli himins og jarðar sem tengist tísku og útliti, þú getur því alltaf kíkt inn á síðuna okkar og séð eitthvað nýtt.

NUDE magazine
Útgefandi: Origami ehf.
Lynghálsi 4, 5 hæð
Sími: 522 2056
Sendu okkur póst

Jóhanna Björg ChristensenRitstjóri

Jóhanna Björg er stofnandi NUDE magazine. Hún ritstýrir blaðinu og setur það upp, ásamt mörgu öðru sem viðkemur blaðaútgáfunni. Jóhanna er menntuð Multimedia Integrator. Hún hefur mikinn áhuga á tísku og passar sérstaklega vel upp á að lesendur fái að kynnast því nýjasta og besta hverju sinni.


Edda Sif PálsdóttirPrófarkalestur

Edda Sif sér um að málfar og stafsetning blaðsins séu til fyrirmyndar. Hún veit hvað skiptir lesendur miklu máli að ganga að vel skrifuðum texta.


Eyrún Eva HaraldsdóttirPenni / Bloggari

Eyrún sér um að lesendur NUDE magazine gerist svolítið menningarlegir í sambland við tískuna. Hún sér um menningarhluta blaðsins, skrifar um tónlist og viðburði, ásamt því að skrifa greinar og blogga um það sem er að gerast í tískunni hverju sinni.



GassiLjósmyndari

Gassi er aðal ljósmyndari NUDE magazine og sér um að ljósmynda alla fegurðina og flottheitin sem við birtum í blaðinu. Hann hefur starfað lengi í fjölmiðlum og þekkir því umhverfið okkar vel.


Daníel I. BjarnasonMyndbönd

Danni er búinn að mennta sig í kvikmyndagerð og sér um að mynda það sem gerist baksviðs í myndatökum, kvikmynda tískusýningar og margt annað fyrir blaðið. Hann vinnur einnig myndböndin og gerir það af stakri snilld.