Mig langaði til að segja ykkur frá Youngblood förðunarvörunum. Merkið er með snilldar steinefnafarða og ekki skemmir fyrir að vörurnar eru allar gerðar úr náttúrulegum efnum, eitthvað sem ég kann vel að meta. Engin ilmefni, engin rotvarnarefni og engin kemísk efni.
Steinefnafarðinn hefur t.d. þann eiginleika að húðin getur andað í gegnum hann og þannig farði hentar þeim sem hafa viðkvæma húð ótrúlega vel. Einnig hentar þessi farði feitri og bólóttri húð, því hann er algjörlega olíulaus og mjög léttur.
Það eru líka vörur úr línunni fyrir varir og augu. Allt rosa fallegt. Þið getið skoðað meira hér og sett í litla körfu ef þið viljið. Þessar vörur fást líka í Hagkaup.

0 Comments
You can be the first one to leave a comment.