Næstkomandi laugardag verður opið hús hjá Fashion Academy Reykjavík.
Af heimasíðu Fashion Academy Reykjavík - www.fashionacademy.is
Fashion Academy Reykjavík er nýr skóli á Íslandi sem býður upp á nám sem nýtist í tískubransanum (og auðvitað á víðari vettvangi) og er þar af leiðandi miðstöð náms í greinum tengdum tísku, heilsu og fegurð. Mikil áhersla verður á samstarf á milli deilda og tekur námið allt frá nokkrum vikum upp í heilt ár. Til að kynna námið betur ætlar skólinn að bjóða upp á opið hús næstkomandi laugardag, þann 28. janúar, og bjóða gestum og gangandi að skoða nýju húsakynnin. Þar gefst fólki einnig tækifæri til að spyrja leiðbeinendur og kennara spurninga sem viðkoma náminu.
Opna húsið stendur frá 14:00 – 17:00
Skólinn er staðsettur í Ármúla 21 í Reykjavík.
Viðburðurinn á Facebook.
(sjá leiðbeinendur og kennara sem sitja fyrir svörum)

0 Comments
You can be the first one to leave a comment.